Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður haldinn miðvikudaginn 7. mars n.k. Fundurinn fer fram í Víðistaðakirkju og hefst með eftirmiðdagshressingu kl. 17.30 og helgistund í Víðistaðakirkju kl. 17.45.
Gert er ráð fyrir að reikningar sókna verði lagðir fram á leiðarþingi í haust þar sem ljóst er að aðalsafnaðarfundum verður ekki öllum lokið fyrir héraðsfundinn. Hins vegar skal enn sem fyrr skila reikningum sókna og kirkjugarða til prófasts í síðasta lagi 26. maí (4 eintök). Æskilegt er að stefnt verði að því að halda aðalsafnaðarfundi sem fyrst á árinu.
Öllum þjónandi prestum, djáknum, formönnum sóknarnefnda og safnaðarfulltrúum ber að sækja héraðsfund. Þeir sem ekki eiga heimangengt eru vinsamlega beðnir að sjá til þess að varamenn mæti í staðinn. Organistar og annað starfsfólk safnaðanna á rétt til fundarsetu.
Dagskrá
Kl. 17.30 Eftirmiðdagshressing.
Kl. 17.45 Helgistund
Helgistund í Víðistaðakirkju í umsjón sr. Braga Ingibergssonar.
Kl. 18.00 Fastir liðir
- Formaður sóknarnefndar Víðistaðasóknar, Hjörleifur Þórarinsson, flytur ávarp.
- Yfirlitsræða prófasts.
- Reikningar héraðssjóðs.
- Reikningar sókna og kirkjugarða lagðir fram.*
- Starfsáætlun héraðsnefndar lögð fram.*
- Fjárhagsáætlun héraðsnefndar lögð fram.*
- Skýrsla héraðsprests kynnt.
- Skýrsla æskulýðsnefndar kynnt.
- Starfsskýrslur sókna frá síðasta ári (sjá fundarboð).
- Tillögur lagðar fram.
- Kosning prests og varamanns hans í héraðsnefnd til tveggja ára.
- Kynning á útgáfu prédikunarfræði Wilfrieds Engemanns.
- Önnur mál.
Kl. 19.30 Kvöldverður.
Kl. 20.15 Lúther og siðbótarfræðsla
Frumsýning heimildakvikmyndar um Lúther og Lúthersslóðir, sem héraðssjóður styrkti, og samtal um siðbótarfræðslu í aðdraganda fimm alda afmælis siðbótarinnar.
Kl. 21.30 Fundarslit.
Lögð verður fram tillaga um að dagskrárliðum, sem auðkenndir eru með stjörnu, verði frestað til leiðarþings.