Skip to main content

Grindavíkursókn

v/Ránargötu, 240 Grindavík
Sími 426 8675
Veffanga: www.grindavikurkirkja.is

Prestur

Sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur
s. 696-3684, srelinborg(a)simnet.is

Formaður sóknarnefndar

Gígja Eyjólfsdóttir
gigjaey(hja)gmail.com

Ágrip af sögu sóknarinnar

Frá fornu fari var kirkjustaður á Stað vestan við Járngerðarstaðahverfi. Árið 1909 var kirkja reist í Járngerðastaðahverfi og vígð 26. september. Hún var notuð allt þar til ný kirkja var vígð á horni Austurvegar og Ránargötu 26. september 1982. Undirbúningur að smíði nýju kirkjunnar hófst 1966 og var Ragnar Emilsson, arkitekt, fenginn til þess að teikna kirkjuna. Fyrsta skóflustungan var tekin 1972. Kirkjan er byggð úr steinsteypu. Byggingameistari var Guðmundur Ívarsson en formaður byggingarnefndar Ólafur Sigurðsson, múrarameistari. Kirkjan er að grunnfleti 538 fermetrar og að auki er 49 fermetra kjallari. Kirkjuskipið sjálft er 255 fermetrar. Í kirkjuskipi eru þrjátíu bekkir úr oregonfuru og rúmast þar 240 manns. Í norðausturhorni kirkjunnar er skrúðhús. Safnaðarheimilið, 112 fermetrar að grunnfleti, kemur hornrétt á kirkjuna út úr suðurhlið hennar, þar geta kirkjugestir setið við fjölmennar athafnir.