Sameiginlegur þingmálafundur fyrir Reykjavíkur- og Kjalarnessprófastsdæmi verður haldinn miðvikudaginn 26. september kl. 17.30 í Digraneskirkju í Kópavogi.
Það eru kirkjuþingsfulltrúar í viðkomandi kjördæmum sem boða til fundarins en þar verða kynnt þau mál sem fyrirhugað er að leggja fyrir kirkjuþingið í haust.
Áhugasamir eru hvattir til að koma og kynna sér kirkjuþingsmál og ræða við kirkjuþingsfulltrúa sína.
Boðið verður upp á léttar veitingar en fundi lýkur kl. 19.30.