Skip to main content

Lát rödd þína heyrast

Eftir mars 5, 2013janúar 10th, 2020Fréttir

Sjálfsstyrking og áhrif ungs fólks í kirkjunni er efni námskeiðs sem æskulýðsstarf kirkjunnar á suðvesturhorninu heldur í í Seltjarnaneskirkju miðvikudaginn 6. mars kl 18-21.30. Fyrirlestrar og iðja er í höndum Ilmar Kristjánsdóttur, leikkonu, og Halldórs Elíasar Guðmundssonar, djákna og æskulýðsfulltrúa.
b03210605_ilmur_kris_02
Dagskrá
18.00 Mæting

18.10 Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona

  • Kanntu að koma þínu á framfæri?
  • Læturðu rödd þína heyrast?
  • Veistu að þú ert fyrirmynd?

19.10 Kvöldmatur og samfélag

20.00 Halldór Elías Guðmundsson

  • Ertu pappakassi?
  • Kirkjan okkar- hvernig höfum við áhrif ?

21.00 Helgistund í höndum ungra kvenna í kirkjunni

21.30 Námskeiðislok

Námskeiðið er ætlað leiðtogum 15 ára og eldri.

Að námskeiðinu standa ÆSKÞ, ÆSKR, Kjalarnessprófastsdæmi, KFUM/K og Biskupsstofa.