Skip to main content

Þingmálafundur í Digraneskirkju 26. september

Eftir september 20, 2011janúar 10th, 2020Fréttir

Kirkjuþingsfulltrúar í 1., 2. og 3. kjördæmi, sem eru Kjalarnesprófastsdæmi, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og Reykjavíkurfrófastsdæmi vestra, boða til fundar mánudaginn 26. september kl. 19:00 í Digraneskirkju í Kópavogi.
Kirkjuþingsbjalla

Á fundinum verða kynnt þau kirkjuþingsmál sem fyrirhugað er að leggja fyrir kirkjuþingið í haust. Mikilvægt er að þau öll sem starfa á kirkjulegum vettvangi eigi samtal við kirkjuþingsfulltrúana og skiptist á skoðunum um þau mál sem þar verða kynnt.

Boðið upp á léttar veitingar.