Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður fimmtudaginn 16. mars í Grindavíkurkirkju og hefst með helgistund kl. 17:30.
Öllum þjónandi prestum, djáknum, formönnum sóknarnefnda og safnaðarfulltrúum, einnig kirkjuþingsmönnum prófastsdæmisins og fulltrúum prófastsdæmisins á leikmannastefnu ber að sækja héraðsfund. Annað starfsfólk safnaðanna á rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétt og fundurinn er jafnframt opin öllu áhugafólki um kirkjulegt starf.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Helgistund
- Fundarsetning – kosning fundarstjóra og ritara
- Yfirlitsræða prófasts: skýrsla héraðsnefndar
- Ársreikningar héraðssjóðs til samþykktar
- Starfsáætlun héraðsnefndar lögð fram til samþykktar
- Starfsskýrslur
- héraðsprests
- tónlistarnefndar
- sókna
- ársreikningar sókna og kirkjugarða
- Mál er varða kirkjuþing
- Samþykktir prestastefnu og leikmannastefnu kynntar
- Ákvörðun um greiðslur til kjörinna héraðsnefndarmanna
- Sameiginleg mál sóknarnefnda er varða rekstur og starfsmannahald
- Kosningar
- Aðrar kosningar
- Önnur mál
- Umsögn um tillögu að sameiningu Njarðvíkur- og Ytri-Njarðvíkursókna
- Margrét Bóasdóttir fjallar um „Sviðsljósið og bak við tjöldin“ – Ný sálmabók og sálmamaraþon
Fundurinn er samkvæmt starfsreglum um héraðsfundi og héraðsnefndir nr. 965/2006.