Skip to main content

Börn afhentu Hjálparstarfinu debetkort

Eftir maí 14, 2018janúar 10th, 2020Fréttir

Börn og unglingar fyrir hönd Æskulýðssambands kirkjunnar í Kjalarnessprófastsdæmi afhentu Hjálparstarfi kirkjunnar debetkort að upphæð 481.244.- kr. við fjölskylduguðsþjónustu í Brautarholtskirkju, sem fram fór 13. maí.

Á æskulýðsdegi þjóðkirkunnar í mars tóku börn og unglingar höndum saman í kirkjum Kjalarnessprófastsdæmis og stóðu fyrir vöfflukaffi, kaffisölu, kaffihúsi, gengu í hús ofl. í tengslum við helgihald dagsins til söfnunar fyrir steinhúsum í Úganda. Margt smátt gerir eitt stórt og það reyndu börnin á þessum degi þegar ofangreind upphæð safnaðist. Áður höfðu börnin fengið fræðslu um aðstæður barna í Úganda, sem mörg eru munaðarlaus, eiga ekki heimili eða hafa skjól yfir höfuðið á næturna eða á rigningartímanum.

Verkefnið hófst í fyrra og þetta er í annað skiptið sem söfnunin fer fram, en nú í ár stóð hið nýtofnaða Æskulýðssamband kirkjunnar í Kjalarnessprófastsdæmi að söfnuni. Það safnaðist tvisvar sinnum meira en á síðasta ári og fyrir þessa upphæð er hægt að byggja fjögur múruð steinhús með bárujárnsþaki.

Sóknarpresturinn sr. Arna Grétarsdóttir leiddi stundina og það var Kristín Ólafsdóttir frá Hjálparstarfi kirkjunnar sem tók við debetkortinu eftir að börninu höfðu látið það ganga til hennar. Hún þakkað börnunum fyrir og minnti á á hversu mikilvægt það er fræðast um aðstæður bágstaddra og gefa af tíma sínum til að hjálpa og láta gott af sér leiða.

Myndband frá afhendingunni.