Skip to main content

Halleujah á fermingarhátíð Suðurnesja

Eftir febrúar 20, 2018janúar 10th, 2020Fréttir

Það mikið fjör og gaman á fermingarbarnahátíð kirknanna á Suðurnesjum.sem fram fór Keflavíkur- og Ytri-Njarðvíkurkirkju síðastliðinn sunnudag. Um 200 börn  frá Grindavík, Garði, Reykjanesbæ og Sandgerði sóttu hátíðina ásamt prestum sínum og fermingarfræðurum.

Hátíðin hófst í Keflavíkurkirkju með samhristing, svo var boðið upp pítsuveisla og fjölbreytta fræðslu. Í fræðslunni var börnunum skipt í hópa og þau fóru á milli stöðva, þar sem fjallað var um samskipti og hvernig við látum gott af okkur leiða. Farið í leiki sem byggja á trausti og sungið. Í einum hópnum talaði Ísak Ernir Kristinsson við börnin um það sem hann lærði í fermingarfræðslunni og hvernig það hefur komið honum að notum í lífinu.

Þá var farið í rútu í Ytri-Njarðvíkurkirkju, en þar fór fram lokstund hátíðarinnar. Hljómsveitin Sálmari spilaði og var með leiki. Svo kom að stóru stundinni sem börnin höfðu beðið eftir þegar Jói Pé og Króli stigu á svið og tóku nokkur lög við  góðar undirtektir. Að lokinni helgistund var lokalagið Halleujah eftir Leonard Cohen, sem krakkarnir höfðu æft í sönghópnum. Að mati þeirra sem að hátíðinni stóðu var þetta hápunktur, því öll sem eitt tóku þau undir og kirkjan ómaði af söng og innlifun.

Hátíðin var samstarfsverkefni safnaðanna á Suðurnesjum með stuðningi frá Kjalarnessprófastsdæmi og utan um dagskrána héldu prestar kirknanna ásamt héraðspresti, fermingarfræðurum og öflugum hópi sjálfboðaliða og ungleiðtoga.

Þetta er í fyrsta skiptið sem fermingarhátíðin er haldin á Suðurnesjum og nú hafa tvær hátíðar verið haldnar í Kjalarnessprófastsdæmi undir yfirskriftinni „Betri eru tveir en einn“ og umfjöllunarefnið er vinátta. Hátíðirnar hafa tekist mjög vel og þær hafa sótt yfir 500 ferminbarbörn.