Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður fimmtudaginn 27. apríl í Strandbergi, Hafnarfjarðarkirkju og hefst með helgistund kl. 17:30. Öllum þjónandi prestum, djáknum, formönnum sóknarnefnda og safnaðarfulltrúum ber að sækja héraðsfund. Organistum er boðið sérstaklega og annað starfsfólk safnaðanna á rétt til fundarsetu.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
17:30 Helgistund í Hafnarfjarðarkirkju
18:00 Aðalfundarstörf
- Fundarsetning
- Yfirlitsræða prófasts: skýrsla og starfáætlun héraðsnefndar
- Ársreikningur héraðssjóðs lagður fram til samþykktar
- Reikningar sókna og kirkjugarða lagðir fram
- Starfsáætlun héraðsnefndar lögð fram til samþykktar
- Skýrslur héraðspresta
- Starfsskýrslur sókna frá síðasta ári
- Ákvörðun um tekjur héraðssjóðs
- Kosningar
- Önnur mál
19:00 Kvöldverður og söngatriði
19:40 Erindi: Ragna Sara Jónsdóttir, ráðgjafi, fjallar um samfélagslega ábyrgð. Almennar umræður
21:00 Fundarslit