Skip to main content

Héraðsfundur

Eftir apríl 17, 2018janúar 10th, 2020Fréttir

Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður fimmtudaginn 26. apríl í Vídalínskirkju, Garðabæ og hefst með helgistund kl. 17:30. Öllum þjónandi prestum, djáknum, formönnum sóknarnefnda og safnaðarfulltrúum, einnig kirkjuþingsmenn prófastsdæmisins og fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu ber að sækja héraðsfund. Organistum er boðið sérstaklega og annað starfsfólk safnaðanna á rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétt.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

17:30   Helgistund í Vídalínskirkju

17:50   Aðalfundarstörf

  • Fundarsetning – kosning fundarstjóra og ritara
  • Yfirlitsræða prófasts: skýrsla og starfsáætlun héraðsnefndar
  • Ársreikningar héraðssjóðs til samþykktar
  • Starfsáætlun héraðsnefndar lögð fram til samþykktar
  • Starfsskýrslur
    – héraðsprests
    – sókna
    – ársreikningar sókna og kirkjugarða

19:00   Kvöldverður

19:30 Fundi framhaldið

  • Mál er varða Kirkjuþing, tekin til umfjöllunar og afgreiðslu
  • Samþykktir Prestastefnu og Leikmannastefnu kynntar
  • Ákvörðun um greiðslur til kjörinna héraðsnefndarmanna fyrir störf þeirra á liðnu ári
  • Sameiginleg mál sóknarnefnda er varða rekstur og starfsmannahald
  • Ákvörðun um tekjur héraðssjóðs
  • Kosningar
    -Kosning aðalmanns og varamanns í héraðsnefnd til tveggja ára
  • Önnur mál
  • Samtal um tónlist í kirkjunni og tónlistarstefnuna þjóðkirkjunnar
    – Guðmundur Sigurðsson, organisti Hafnarfjarðarkirkju
    – Helga Þórdís Guðmundsdóttir, organisti Víðistaðakirkju
    – Þórður Sigurðarson, organisti Lágafellskirkju

20:20 Fundarslit

Fundurinn er samkvæmt starfsreglum um héraðsfundi og héraðsnefndir nr. 965/2006.