Skip to main content

Kirkjulistavika 2026

Eftir febrúar 6, 2026Fréttir

Dagana 8.-15. febrúar fer fram kirkjulistavika í söfnuðum prófastsdæmisins. Nánari upplýsingar um viðburðina: Kirkjulistavika.

Yfirskrift kirkjulistavikunnar er sótt í Sálmana: „Í skugga vængja þinna.“, en þar koma þessi orð nokkrum sinnum fyrir. Fallegt myndmál sem tjáir djúpa nánd, öryggi og vernd sem erfitt er að fanga með orðum. Líkt og í trúnni finnum við í listinni skjól og svigrúm til að tjá djúpar tilfinningar, vonir og þrár. Í skjóli vængjanna blómstrar lífið í fegurð og lofgjörð til Guðs.

Nú í ár eru fjölbreyttir viðburðir í söfnuðum prófastsdæmisins eða alls 16, t.d. tónleikar, myndlistarsýningar, gjörningur, listfyrirlestur og margt fleira. Kirkjulistaviku lýkur með barnakóramóti sunnudaginn, 15. febrúar, kl. 16:00 í Hafnarfjarðarkirkju: https://fb.me/e/6jR5enG67.

Frítt er inn á alla viðburðina og verum öll hjartanlega velkomin.