Skip to main content

Kristin íhugun (Centering prayer), í Grindavíkurkirkju, laugardaginn 13. febrúar kl. 10-17

Eftir febrúar 9, 2010janúar 10th, 2020Fréttir

Á þessum degi verður Fagnaðarbænin (welcoming prayer) kennd. Fagnaðarbænin er að gefast Guði í dagsins önn. Hún er leið/aðferð til að samþykkja nærveru og verkan Guðs í líkamlegum og tilfinningalegum viðbrögðum okkar gagnvart atburðum og aðstæðum í daglegu lífi.

Kennslan er ókeypis en hádegisverður kostar kr. 1.000,-. Allir eru velkomnir. Umsjón hafa sr. Elínborg Gísladóttir og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, djáknakandídat og leiðbeinandi í centering prayer. Nánari upplýsingar og skráning er hjá sr. Elínborgu Gísladóttur í síma 696 3684 og á netfangi: gkirkja@isl.is