Haustnámskeið í hugvekjugerð
Föstudaginn 15. nóvember næstkomandi verður haldið námskeið í hugvekjugerð fyrir æskulýðsfulltrúa, presta, djákna og nemendur í guðfræðideild HÍ. Námskeiðið verður haldið í safnaðarheimili Háteigskirkju – í Setrinu – og hefst það kl. 9.
Nánari dagskrá:
9:00 Mæting og morgunkaffi.
9.30 Helgistund.
10:00 Fyrirlestur og umræður: Sr. Guðni Már Harðarsson, MA. nemi í prédikunarfræðum við Luther‘s Seminary í St. Paul, flytur erindi.
11.30. Fyrirlestur og umræður: Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sjúkrahúsprestur, flytur erindi um hugvekjur í erfiðum aðstæðum.
12.30 Hádegismatur
13:00 Fyrirlestur og umræður: Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, flytur erindi um hugvekjur til einstaklinga með þroskahömlun.
14:00 Námskeiðslok.
Námskeiðsgjald eru 3000 kr. Tekið er á móti skráningu hjá biskupsstofu í síma 528 4000 og á netfanginu kristin.arnardottir@kirkjan.is eða skraning@kirkjan.is. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 13. nóvember.
Námskeiðið er samstarfsverkefni Biskupsstofu, KFUM og KFUK, ÆNK, ÆSKR og ÆSKÞ og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.