Skip to main content

Netsamskipti á bókakaffi

Eftir nóvember 23, 2010janúar 10th, 2020Fréttir

Á síðasta nóvember-bókakaffi Kjalarnessprófastsdæmis verður athyglinni beint að smásagnasafninu Geislaþráðum eftir Sigríði Pétursdóttur. Höfundurinn sem er þekkt útvarpskona kemur og ræðir um sögurnar á skrifstofu prófastsdæmisins fimmtudaginn 25. nóvember kl. 11.

Um bókina segir í kynningu:

Þótt ýmislegt hafi breyst í samskiptum fólks á nýrri öld slá hjörtu mannanna alltaf eins. Í Geislaþráðum liggja leiðir fólks saman á Netinu – tölvupóstar skjótast á örskotsstund heimshorna á milli, eða bara yfir í næsta hverfi. Ástæðurnar fyrir því að fólkið sem við kynnumst í þessari bók byrjar að skrifast á eru mismunandi: Hulda, ófrísk táningsstúlka, kynnist aldraðri ástralskri konu og þær komast að því að þær eiga sitthvað sameiginlegt. Kveikjan að skrifum Alison og Höllu er karlmaður sem virðist ekki við eina fjölina felldur. Berglind býr yfir leyndarmáli og sendir Halldóri póst. Feðgarnir Gunnar og Árni Þorkell skrifast á yfir hafið.

Velkomin í bókakaffi að ræða samskipti Íslendinga í samtímanum!