Skip to main content

Nýr biskup tekur til starfa

Eftir júlí 5, 2012janúar 10th, 2020Fréttir

Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, hóf formlega störf á Biskupsstofu þann 1. júlí síðastliðinn. Dagurinn hófst á helgistund með starfsfólki og morgunkaffi áður en gengið var til starfa.

Agnes biskup las orð Jesaja spámanns úr 12. kafla, sem hafði talað til hennar þennan morgun:

Sjá, Guð er hjálp mín,
ég er öruggur og óttast ekki.
Því að Drottinn er vörn mín og lofsöngur,
hann kom mér til hjálpar.
Þér munuð með fögnuði vatni ausa
úr lindum hjálpræðisins.

Á myndasvæði kirkjunnar má skoða myndir frá biskupsvígslu Agnesar og frá messu við lok prestastefnu þar sem henni var afhentur biskupsstafur og lykill embættisins.