Skip to main content

Frjálslynd guðfræði í nýju ljósi, málþing 20. -21. maí

Eftir maí 23, 2010janúar 10th, 2020Fréttir

Á málþingi Kjalarnessprófastsdæmis um frjálslynda þjóðkirkjuhefð sem haldið verður í Reykholti 20-21. maí 2010 verður prófessor emeritus Klaus-Peter Jörns gestur okkar og aðalfyrirlesari. Málþinginu er ætlað að skoða inntak þeirrar guðfræði sem liggur þjóðkirkjuhugsjóninni til grundvallar og jafnframt verður hugað að endurvakningu þessarar hefðar í samtímaguðfræði og kirkjulífi. Málþingið er öllum opið. Sjá dagkrá.

Klaus-Peter Jörns er þekktur og eftirsóttur fyrirlesari, hann hefur ritað allmargar bækur um frjálslynda guðfræði. Hann var prófessor í praktískri guðfræði við Kirkjulega háskólann í Berlín á árunum 1981-1999 og kenndi jafnframt við guðfræðideild Humboldtháskóla í sömu borg, þar var hann einnig forstöðumaður stofnunar fyrir rannsóknir í trúarfélagsfræði.