Skip to main content

Sólheimanámskeið í Hafnarfjarðarkirkju 6. febrúar

Eftir janúar 23, 2010janúar 10th, 2020Fréttir

Hið árlega leiðtoganámskeið kirkjunnar og KFUM og KFUK verður haldið laugardaginn 6. febrúar.  Að þessu sinni verður það haldið í Hafnarfjarðakirkju en þar er frábær aðstaða.

Sólheimanámskeiðið er ætlað leiðtogum og leiðtogaefnum í barna- og unglingastarfi kirkjunnar og KFUM og KFUK 15-90 ára. Verð: 2.900 kr.

 

Að þessu sinni verður hópnum skipt í þrennt: 17 ára og yngri, 18-23 ára og 24 ára og eldri. Að venju höfum við fengið til liðs við okkur mikið hæfileikafólk sem hefur miklu að miðla.

Dagskrá:


17 ára og yngri

F.h. Fræðsla um sjálfsmynd og sjálfsstyrking. Umsjón: Haukur Árni Hjartarson B.A. í sálfræði og Arnar Ragnarsson sálfræðinemi.

E.h. Æfingar í farmsögn og framkomu. Umsjón: Matthildur Bjarnadóttir guðfræðinemi.

18-23 ára

F.h. Sálgæsla unglinga. Umsjón: Þráinn Haraldsson guðfræðingur.

E.h.Sjálfsmynd unglinga. Umsjón: Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur.

24 ára og eldri

F.h.Sjálfsmynd unglinga. Umsjón: Gylfi Jón Gylfason sálfræðingur.

E.h. Sálgæsla unglinga. Umsjón: Þráinn Haraldsson guðfræðingur.

 

 Námskeiðið hefst með helgistund kl. 9.30 en boðið er upp á morgunhressingu frá kl. 9.00. Námskeiðinu lýkur kl. 16.30. Ætlast er til að þátttakendur séu á staðnum ALLAN tíman.

Verð

Þátt­tökugjald fyrir hvern þátttakenda er 2.900.- kr. og er innifalin matur, fræðsla og námskeiðsgögn. Fræðslusvið Biskupsstofu greiðir ferðastyrk til þeirra sem koma frá prestaköllum utan prófastsdæmanna á höfuðborgarsvæðinu sem jafngildir þátttökugjöldum.

Skráning

Skráning fer fram hjá fræðslusviði Biskupsstofu í síðasta lagi mánudaginn 1. febrúar. Frekari upplýsingar eru veittar á fræðslusviði Biskupsstofu eða með því að senda tölvupóst á kristin.arnardottir@biskup.is eða skrá sig í síma 528 4000 hjá Kristínu Arnardóttur.

Námskeiðið er samstarfsverkefni fræðslusviðs Biskupsstofu, KFUM og KFUK, ÆSKR, ÆSKÞ og ÆNK.