Kærkomið íslenskt sumar ber með sér léttari og bjartari lund sem skilar sér í helgihaldinu og samfélaginu eins og sjá má í sameiginlegri dagskrá kirknana í prófastsdæminu nú í júní. Nú yfir sumarið eins og undanfarin sumur taka söfnuðir prófastsdæmisins höndum saman og standa fyrir fjölbreyttu helgihaldi yfir sumartímann á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi og Mosfellsbæ, Kjós og Kjalarnesi.
Sumarmessur á Suðurnesjum
Um árabil hafa kirkjurnar á Suðurnesjum átt í samstarfi um helgihaldið yfir sumartímann og messað til skiptis í kirkjunum í Grindavík, Reykjanesbæ, Vogum, Höfnum, Garðinum og Sandgerði. Um er að ræða kvöldmessur sem hefjast kl. 20:00 og þar ræður fjölbreytnin ríkjum og boðið m.a. upp á göngu-, dýrablessun-, kósýmessur og messumeistarann. Nánari upplýsingar um Sumarmessur á Suðurnesjum.
Sumarmessur í Garðakirkju
Í Garðakirkju kl. 11:00 skipta prestar, djáknar, organistar og starfsfólk Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi með sér þjónustunni við messu hvern sunnudag yfir sumarið. Á eftir er boðið upp á kaffi og notalegt samfélag í hlöðinni á burstarbænum Króki, þar sem ýmislegt verður á boðstólunum. Streymt er frá messunum á Facebókarsíðunni Sumarmessur í Garðakirkju.
Sumarmessur í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós
Söfnuðirnir í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós vinna saman með sameiginlegum sumarmessur. Þar er íslenska sveitakirkjan í forgrunni og boðið m.a. upp á göngu-, kvöld- og hestamessu í bland við annað. Á Facebókarsíðu Sumarmessur í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós er að finna upplýsingar um helgihaldið.