Skip to main content

Vel heppnað barnakóramót

Eftir febrúar 17, 2026Fréttir

Kirkjulistaviku lauk sunnudaginn 15. febrúar með barnakóratónleikum í Hafnarfjarðarkirkju. Barna- og unglingakórarnir höfðu æft fjölbreytta efnisskrá tónleikanna frá áramótum og komu saman á sunnudeginum til að æfa sameiginlega á barnakóramóti sem lauk með tónleikum í kirkjunni.

Um 100 börn tóku þátt í tónleikunum ásamt hljómsveit, kórstjórum og tónlistarkonunni Hafdísi Huld. Yfirskrift tónleikanna var „Í skugga vængja þinna“, sem var einnig yfirskrift kirkjulistaviku prófastsdæmisins. Tónleikarnir tókust afar vel og voru fjölsóttir.

Hér er hægt að horfa á upptöku frá tónleikunum.

Kórar sem tóku þátt voru:

  • Himinn og jörð – Keflavíkurkirkja
    Regnbogaraddir – Keflavíkurkirkja
    Stjórnendur: Arnór B. Vilbergsson og Freydís Kneif Kolbeinsdóttir
  • Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju
    Stjórnendur: Guðný Alma Halldórsdóttir og Helga Sigríður Kolbeins
  • Skólakór Sandgerðisskóla
    Stjórnandi: Sigurbjörg Hjálmarsdóttir og Elsu Mörtu Ægisdóttur
  • Barnakór Lágafellssóknar
    Stjórnendur: Valgerður Jónsdóttir og Sylvía Þórðardóttir
  • Ungmennakór Víðistaðakirkju
    Stjórnendur: Sveinn Arnar Sæmundsson og Helga Sigríður Kolbeins