Skip to main content

Vetrarstarfi í Grindavík lýkur með brúðuleikhúsi

Eftir apríl 29, 2013janúar 10th, 2020Fréttir

Það verður mikið um dýrðir í Grindavík þann 1. maí. Barnastarf kirkjunnar heldur upp á sumarkomu með brúðusýningunni Pétur og Úlfurinn en 
Bernd Ogrodnik brúðuleiklistarmaður mætir með hina bráðskemmtilegu og gullfallegu sýningu sína.


Sýningin Pétur og Úlfurinn var sett upp í Þjóðleikhúsinu og fékk hún frábæra aðsókn og toppdóma gagnrýnenda. Grindvíkingar og nærsveitungar eru hvattir til að missa ekki af þessari fallegu sýningu í kirkjunni kl. 11.

Eftir leikritið og samveruna í kirkjunni verða grillaðar pylsur og djús í boði og hoppkastali verður úti fyrir börnin.

Að sögn sr. Elínborgar Gísladóttur sóknarprests, styrkir verkalýðsfélag Grindavíkur brúðuleiksýninguna og það eru 
allir velkomnir.