
Sumarið er gengið í garð og með því fylgir léttari og bjartari tónn í helgihaldinu víðs vegar um prófastsdæmið. Söfnuðir taka höndum saman líkt og undanfarin sumur og bjóða upp á fjölbreytt helgihald í júní, júlí og ágúst á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi, Mosfellsbæ, Kjós og á Kjalarnesi.
Sumarmessur á Suðurnesjum
Á Suðurnesjum hefur skapast falleg hefð fyrir sameiginlegu helgihaldi yfir sumartímann. Messur eru haldnar til skiptis í Grindavík, Reykjanesbæ, Vogum, Höfnum, Garðinum og Sandgerði. Oftast er um kvöldmessurnar ræða sem hefjast kl. 20:00 og þar er boðið m.a. upp á göngumessur, dýrablessun, kósýmessur og messumeistarinn. Nánari upplýsingar má finna á Sumarmessur á Suðurnesjum.
Sumarmessur í Garðakirkju
Í Garðakirkju verða messur alla sunnudaga kl. 11:00 þar sem prestar, djáknar, organistar og starfsfólk saf úr Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi sameinast um þjónustuna. Að messu lokinni er boðið í kaffi og samfélag í hlöðunni á burstarbænum Króki, þar sem gestir geta notið samveru og fjölbreyttrar dagskrár. Messunum er streymt á Sumarmessur í Garðakirkju.
Sumarmessur í Esjuprestakalli
Söfnuðirnir í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós halda áfram góðu samstarfi sínu og bjóða upp á sumarhelgihald þar sem sveitakirkjan er í öndvegi. Á dagskránni eru m.a. göngumessur, kvöldmessur, hestamessa og ýmislegt fleira sem tengir helgihaldið við náttúruna og íslenskt sumar. Upplýsingar má finna á Sumarmessur í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós.