Monthly Archives

febrúar 2026

Vel heppnað barnakóramót

Eftir Fréttir

Kirkjulistaviku lauk sunnudaginn 15. febrúar með barnakóratónleikum í Hafnarfjarðarkirkju. Barna- og unglingakórarnir höfðu æft fjölbreytta efnisskrá tónleikanna frá áramótum og komu saman á sunnudeginum til að æfa sameiginlega á barnakóramóti sem lauk með tónleikum í kirkjunni.

Um 100 börn tóku þátt í tónleikunum ásamt hljómsveit, kórstjórum og tónlistarkonunni Hafdísi Huld. Yfirskrift tónleikanna var „Í skugga vængja þinna“, sem var einnig yfirskrift kirkjulistaviku prófastsdæmisins. Tónleikarnir tókust afar vel og voru fjölsóttir.

Hér er hægt að horfa á upptöku frá tónleikunum.

Kórar sem tóku þátt voru:

  • Himinn og jörð – Keflavíkurkirkja
    Regnbogaraddir – Keflavíkurkirkja
    Stjórnendur: Arnór B. Vilbergsson og Freydís Kneif Kolbeinsdóttir
  • Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju
    Stjórnendur: Guðný Alma Halldórsdóttir og Helga Sigríður Kolbeins
  • Skólakór Sandgerðisskóla
    Stjórnandi: Sigurbjörg Hjálmarsdóttir og Elsu Mörtu Ægisdóttur
  • Barnakór Lágafellssóknar
    Stjórnendur: Valgerður Jónsdóttir og Sylvía Þórðardóttir
  • Ungmennakór Víðistaðakirkju
    Stjórnendur: Sveinn Arnar Sæmundsson og Helga Sigríður Kolbeins

Tónleikar barna- og unglingakóra „Í skugga vængja þinna“

Eftir Fréttir

Barna- og unglingakórar flytja fjölbreytta efnisskrá ásamt Hafdísi Huld, sunnudaginn 14. febrúar, kl. 16:00 í Hafnarfjarðarkirkju. Tónleikarnir marka jafnframt lok kirkjulistaviku sem hófst 8. febrúar undir sömu yfirskrift. Nánari upplýsingar á Facebook.

Ókeypis aðgangur og verum hjartanlega velkomin.

Barna- og unglingkórar sem taka þátt:
  • Regnbogaraddir frá Keflavíkurkirkju
  • Skólakór Sandgerðisskóla
  • Barnakór Lágafellssóknar
  • Himinn og jörð frá Keflavíkurkirkju
  • Ungmennakór Víðistaðakirkju
  • Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju

Kirkjulistavika 2026

Eftir Fréttir

Dagana 8.-15. febrúar fer fram kirkjulistavika í söfnuðum prófastsdæmisins. Nánari upplýsingar um viðburðina: Kirkjulistavika.

Yfirskrift kirkjulistavikunnar er sótt í Sálmana: „Í skugga vængja þinna.“, en þar koma þessi orð nokkrum sinnum fyrir. Fallegt myndmál sem tjáir djúpa nánd, öryggi og vernd sem erfitt er að fanga með orðum. Líkt og í trúnni finnum við í listinni skjól og svigrúm til að tjá djúpar tilfinningar, vonir og þrár. Í skjóli vængjanna blómstrar lífið í fegurð og lofgjörð til Guðs.

Nú í ár eru fjölbreyttir viðburðir í söfnuðum prófastsdæmisins eða alls 16, t.d. tónleikar, myndlistarsýningar, gjörningur, listfyrirlestur og margt fleira. Kirkjulistaviku lýkur með barnakóramóti sunnudaginn, 15. febrúar, kl. 16:00 í Hafnarfjarðarkirkju: https://fb.me/e/6jR5enG67.

Frítt er inn á alla viðburðina og verum öll hjartanlega velkomin.