Æskulýðsnefnd Kjalarnessprófastsdæmis (ÆNK) og ÆSKR standa fyrir Vaktu með Kristi samkomunni nú sem áður. ÆSKR ber veg að vanda að skiplagningu viðburðarins þetta árið og fer hann fram í Víðistaðakirkju aðfaranótt föstudagsins langa.
Æskulýðsnefnd Kjalarnessprófastsdæmis (ÆNK) og ÆSKR standa fyrir Vaktu með Kristi samkomunni nú sem áður. ÆSKR ber veg að vanda að skiplagningu viðburðarins þetta árið og fer hann fram í Víðistaðakirkju aðfaranótt föstudagsins langa.
Þessi misserin er mikil afmælatíð í Kjalarnessprófastsdæmi. Hafnarfjarðarkirkja hefur nýverið fagnað 100 ára afmæli sínu og sömuleiðis Keflavíkurkirkja sem einnig er orðin aldargömul. Á þessu ári eru ennfremur tvö önnur afmæli. Mosfellskirkja verður 50 ára í apríl og Vídalínskirkja 25 ára síðar á árinu.
Á síðas
ta fundi héraðsnefndar Kjalarnessprófastsdæmis var ákveðið að setja upp skema sem auðveldar umsækjendum að sækja um í héraðssjóð og sem auðveldar héraðsnefnd að meta umsóknir. Héraðsnefnd hefur ákveðið að í umsóknum til héraðssjóðs fari best á því að eftirfarandi kæmi fram:
Umsækjandi:
Nafn, kennitala, sími, vefpóstfang, bankaupplýsingar. Einnig þarf að koma fram hver er ábyrgðarmaður verkefnisins og umsóknarinnar.
Um verkefnið
Greinargerð um verkefnið þarf að fylgja
Fjárhagsáætlun
Í fjárhagsáætlun skal koma fram: heildarkostnaður, upphæð sem sótt er um og sundurliðuð fjárhagsáætlun eftir því sem á við. Einnig aðrir fengnir eða áætlaðir styrkir, eigið fé o.s.frv.
Fylgiskjöl:
Þau fylgiskjöl mega endilega fylgja sem geta hjálpað héraðsnefnd við ákvarðanatöku sína
Næsti fundur héraðsnefndar verður 9. apríl 2015
Í gegnum tíðina hefur Kjalarnessprófastsdæmi verið iðið við bókaútgáfu, prestum og leikmönnum til uppbyggingar. Nú hefur prófastsdæmið samið við Skálholtsútgáfu um að sjá alfarið um dreifingu og sölu á bókum sem prófastsdæmið hefur gefið út. Þarna eru góðar og mikilvægar bækur á borð við Þjónar í húsi Guðs -handbók, Á mælikvarða mannsins – leiðir til samtímalegrar predikunar, Orðið er laust – um predikun í samtímanum og Siðbótarrannsóknir á tímamótum. Fólk getur því hér eftir verið í sambandi við Kirkjuhúsið og Skálholtsútgáfu ef þessi tilteknu rit vantar í safnið. Kjalarnessprófastsdæmi hvetur alla eindregið sem starfa við kirkjulega þjónustu, predikun eða guðfræði til að nálgast ritin.
Myndarlega var haldið upp á 100 ára afmæli Keflavíkurkirkju nú á sunnudaginn þann 15. febrúar. Margs er að minnast og margt er að þakka úr sögu kirkjunnar í Keflavík þar sem hún hefur verið blessunarfarvegur fyrir marga. Þennan sama dag voru einnig annars konar tímamót í Keflavíkurkirkju því hátíðarmessa sunnudagsins var sú síðasta sem sr. Skúli S. Ólafsson tók þátt í sem prestur kirkjunnar en hann hefur nú tekið við sem prestur í Neskirkju og kveður þar með Kjalarnessprófastsdæmi.
Skri
fstofa Kjalarnessprófastsdæmis bendir öllum á að breytingar hafa nú orðið á högum prófastsdæmisins. Nýr prófastur hefur nú starfað síðan 1. febrúar, hún sr. Þórhildur Ólafs. Einnig hefur skrifstofa prófastsdæmisins flutt með prófasti og hefur nú aðsetur í Strandbergi við Hafnarfjarðarkirkju, Strandgötu, 220 Hafnarfirði. Símanúmer prófastsdæmisins er það sama og fyrr, s.5667301.
Sunnudaginn 1. febrúar næstkomandi mun sr. Þórhildur Ólafs vera sett inn í embætti prófasts Kjalarnessprófastsdæmis. Biskup Íslands mun setja hana í í embættið og fer athöfnin fram kl. 17.00 í Hafnarfjarðarkirkju. Skrifstofa prófastsdæmisins hvetur alla, leika og lærða innan prófastsdæmisins til að mæta.
Viðtal við fráfarandi prófast, dr. Gunnar Kristjánsson, birtist í Fréttablaðinu um helgina. Í því er meðal annars rætt um prófastaskiptin og möguleg framtíðarverkefni Gunnars Viðtalið má lesa með því að smella hér
Miðvikudaginn 28, janúar næstkomandi verður héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis. Fundurinn fer fram í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju og hefst kl. 17.30. Mörg efni verða tekin fyrir á fundinum sem er sérstaklega merkilegur í ljósi þess að þetta verður síðasti héraðsfundur haldinn í prófaststíð dr. Gunnars Kristjánssonar.
Þau ánægjulegur tíðindi hafa borist að Agnes M. Sigurðardóttir biskup hefur tilkynnt hver verði næsti prófastur Kjalarnessprófastsdæmis. Sr. Þórhildur Ólafs, prestur í Hafnarfjarðarkirkju, mun taka við embættinu nú þegar Dr. Gunnar Kristjánsson lætur af störfum við lok mánaðarins. Þórhildur hefur um langt skeið búið og starfað í prófastsdæminu en hún var fyrst vígð til starfa í Hafnarfjarðarkirkju árið 1988. Hún er því vel kunnug sögu prófastsdæmisins og mörgum málefnum þess. Dr. Gunnar Kristjánsson, hefur óskað sr. Þórhildi til hamingju með valið og mun vera henni innan handar við að setja sig frekar inn í starf prófasts þegar þar að kemur.
Nýlegar athugasemdir