Námskeið fyrir leiðtoga í æskulýðsstarfi kirkjunnar verður haldið í Grensáskirkju laugardaginn 5. febrúar frá kl. 9.00- 16.00. Þetta er hið víðfræga Viðeyjar,- Sólheima,- Hafnarfjarðarnámskeið – sem er fjölmennasta námskeiðið sem haldið er fyrir fólk í kristilegu æskulýðsstarfi á Íslandi. Nánar
Notkun félagsmiðla í kirkjustarfi hefur aukist og þroskast síðustu misserin. Við erum alltaf að læra og prófa eitthvað nýtt og þannig verða skemmtilegir hlutir til. Nánar
Grundvallarbreytingar á starfi og stöðu prestsins í samfélaginu hefur áhrif á stöðu og sjálfsmynd sjálfboðaliða í kirkjustarfi. Presturinn þarf að vera meðvitaður um þetta og m.a. finna leið út úr hlutverki sínu sem einyrki og finna sig í staðinn í hlutverki þjálfarans, fyrirliðans, leiðbeinandans og leiðtogans. Nánar
Miðvikudaginn 12. janúar hefst fyrirlestraröð í Keflavíkurkirkju undir yfirskriftinni, Gott kvöld í kirkjunni. Söfnuðirnir í Keflavík, Útskálum, Hvalsnesi og Grindavík standa að þessari dagskrá, en tilgangur hennar er að skapa vettvang fyrir sjálfboðaliða við söfnuðina til fræðslu, samfélags og vaxtar. Kjalarnessprófastsdæmi styrkir verkefnið. Nánar
Fullorðinsfræðsla Hafnarfjarðarkirkju er að fara af stað á ný eftir áramót.
Megináherslan þar í vetur hefur verið á svokölluðum „Trúarbragðaskóla“ þar sem farið er í gegnum öll helstu trúarbrögð mannkyns og þau spegluð í ljósi kristinnar trúar. Námskeiðin eru ætluð almenningi og áhugafólki. Nánar
Dagana 16.-18. janúar 2011 verður haldið fræðslunámskeið um Martein Lúther og áhrif hans í Skálholtsskóla. Námskeiðið fjallar um umbrot siðbótartímans í Mið-Þýskalandi á árunum 1517-1525 og þau varanlegu áhrif sem þau höfðu á vestræna menningu. Nánar
Nýlegar athugasemdir