Skip to main content
Flokkur

Fréttir

Kirkjudagur Kjalarnessprófastsdæmis 2026

Eftir Fréttir

Kirkjudagur Kjalarnessprófastsdæmis verður haldinn í annað skiptið laugardaginn 24. janúar í Keflavíkurkirkju. Markmið Kirkjudagsins er að efla starfsfólk og sjálfboðaliða í störfum sínum á vettvangi safnaða prófastsdæmisins með fræðslu, kynningu og samfélagi. Um leið auka samvinnu og stuðla að nýsköpun í kirkjustarfi.

Á dagskrá kirkjudagsins eru margvíslegar málstofur, fyrirlestur, messa og móttaka ásamt því að fjölmargir aðilar kynna starfsemi sína. Dagskráin er þátttakendum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna í bæklingi um Kirkjudaginn.

Við hlökkum til að sjá þig á Kirkjudegi Kjalarnessprófastsdæmis og hægt er að skrá sig með því að smella hér.

Dagskrá


9:30 Morgunkaffi
10:00 Setning og helgistund
10:15 Málstofur I
11:15 Málstofur II
12:00 Hádegismatur
12:15 Kvikmyndasýning: Til Dyflinnar
 12:30 Kyrrðarbæn í kapellu
13:00 Málstofur III
14:00 Kynningar
14:30 Helgistund
15:00 Móttaka í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju

Boðið eru upp á rútuferð frá Mosfellsbæ kl. 8:30, Garðabæ kl. 8:50 og Hafnarfjörð, kl. 9:00 og til baka þegar dagskrá lýkur.

Málstofur


Málstofurnar eru í 45-50 mín og á fjórum stöðum: kirkju, kennslustofu, minni sal og stærri sal.

I Málstofur kl. 10:15

Raddþjálfun með Laufeyju

Hvernig komum við í veg fyrir að stífna upp og þreytast í söng? Hvernig náum við betri samhljóm í kórnum? Laufey Geirsdóttir söngkennari kemur með æfingar og góð ráð fyrir kórsöngvara.

Staður: kirkja

Sóknarnefnd… og hvað svo?

Sóknarnefndarstarf er mikilvægt leiðtogahlutverk í kirkjunni, en oft fylgja því óljósar væntingar og flókið samspil við starfsfólk og sjálfboðaliða. Í þessari vinnustofu verður fjallað um hlutverk og ábyrgð sóknarnefnda, og hvernig hægt er að byggja upp samstarf, traust og ávinning. Lögð er áhersla á stefnumarkandi sýn, sameiginlegan skilning og praktískar leiðbeiningar. Vinnustofan byggir á kynningu og samtali þátttakenda.

Umsjón: Dr. Eyþór Ívar Jónsson er sérfræðingur í stjórnun, stefnumótun og stjórnarháttum.

Staður: kennslustofa

Af hverju messuþjónar?

Til umfjöllunar er hvernig messuþjónusta styrkir flæði messunnar, móttöku kirkjugesta og styður við þátttöku safnaðarins. Rætt verður hvernig markviss messuþjónusta getur orðið einföld leið til að efla helgihald og skapa hlýlegt messuumhverfi. Einnig ræddar leiðir hvernig við getum laðað fleiri til þátttöku og elft þau sem taka þátt með leiðsögn, samfélagi og skýrum ramma.

Umsjón: Sara Dögg Eiríksdóttir, kynningar- og fræðslufulltrúi Keflavíkurkirkju.

Staður: minni salur

Kirkjuhópefli

Kenndar verða aðferðir til að efla hópa, einstaklinga og styrkja samvinnu. Unnið verður með æfingar og verkefni sem hægt er að nota í fermingarfræðslu og öðru starfi með börnum og unglingum sem styðja við jákvæða uppbyggingu hópsins.

Umsjón: Laufey Brá Jónsdóttir, leikkona og prestur.

Staður: stærri salur

II Málstofur kl. 11:15

Skapandi söngsmiðja

Fjölbreytt tónlist og aðferðir til flutnings. Kynnt fjölbreytt efni og skapandi leiðir til flutnings.

Umsjón: Arngerður María Árnadóttir, organisti, kórstjóri og deildarstjóri endurmenntunar við Tónskóla þjóðkirkjunnar

Staður: kirkja

Vinnustofa: Sjálfboðaliðastarf með tilgangi

Sjálfboðaliðastarf er burðarstoð kirkjunnar og samfélagsins, en til að það sé sjálfbært þarf skýrleika, raunhæfar væntingar og gagnkvæma virðingu. Í þessari vinnustofu verður fjallað um hlutverk sjálfboðaliða, hvernig ábyrgð og frelsi fara saman og hvað stuðlar að því að fólk haldist virkt og upplifi tilgang í starfi sínu. Vinnustofan byggir á kynningu og samtali þátttakenda.

Umsjón: Dr. Eyþór Ívar Jónsson er sérfræðingur í stjórnun, stefnumótun og stjórnarháttum.

Staður: kennslustofa

Staða kirkjugarðanna í dag, horft til framtíðar

Kreppt hefur að rekstri kirkjugarða jafnt og þétt frá hruni árið 2008 en enn þarf að sinna sömu verkefnunum. Hvernig gengur að fjármagna þessi verkefni og hvað getum við gert til að létta róðurinn? Fjallað verður um allt frá daglegum störfum í kirkjugörðum yfir í að horfa á stóru myndina og hvernig gengið hefur að glíma við stjórnsýsluna sem leggur línurnar í málaflokknum.

Umsjón: Ágústa Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri kirkjugarðaráðs.

Staður: minni salur

Að tala um sorg við börn?

Viðbrögð barna og unglinga við missi og áföllum og hvernig starfsfólk kirkjunnar getur rætt um sorg og áföll í starfi með börnum og unglingum.

Umsjón: sr. Matthildur Bjarnadóttir, prestur og verkefnastjóri Arnarins.

Staður: stærri salur

III Málstofur kl. 13:00

Nýtt og nýlegt efni fyrir kóra

Helgistund kirkjudagsins undirbúin. Kenndir sálmar og sálmaútsetningar úr ýmsum áttum sem við æfum saman fyrir helgistundina.

Umsjón: Arngerður María Árnadóttir, organisti, kórstjóri og deildarstjóri endurmenntunar við Tónskóla þjóðkirkjunnar

Staður: kirkja

Hvers vegna þjónandi forysta?

Hvað einkennir þjónandi forystu og hver er ávinningurinn fyrir sóknir að innleiða þjónandi forystu i starfi sínu? Gripið verður niður í ævisögur sr. Braga Friðrikssonar og hr. Karls Sigurbjörnssonar í ljósi hugmyndarinnar um þjónandi forystu. Báðir höfðu þeir víðtæk áhrif á kirkju og samfélag, voru einlægir trúmenn og ríkir af náðargáfum.

Umsjón: dr. Skúli Sigurður Ólafsson, prestur, doktor og stundakennari í þjónandi forystu við háskólann á Bifröst.

Staður: kennslustofa

Nýtt merki, ný sýn – ný tækifæri fyrir sóknir

Nýlega setti Þjóðkirkjan í gang kynningarátak þar sem m.a. er lögð er áhersla á gildi. Einnig var sett í loftið ný vefsíða og nýtt merki kynnt. Hefur þessi breyting áhrif á sóknirnar sjálfar? Geta þær nýtt sér þessa breytingu til að efla sitt kynningarstarf? Pipar/Biskupsstofu segir frá þeim hugmyndum sem að baki átaksins liggur. Í kjölfarið verður velt upp leiðum sem sóknir/kirkjur gætu mögulega nýtt sér í sínu kynningarstarfi.

Umsjón: Leópold Sveinsson, framkvæmdarstjóri Garðasóknar og f.v. markaðsráðgjafi

Staður: minni salur

Kirkja fyrir öll börn sem styður, hlustar og byggir brýr

Hvernig getur kirkjan tekið á móti öllum börnum með ólíkar þarfir, líðan og bakgrunn – og aðlagað fermingarstarf, barna- og unglingastarf og helgihald að þeim? Lögð er áhersla á hlustun, sveigjanleika og skýran ramma sem hjálpar okkur að byggja brýr milli barna, fjölskyldna og kirkjulífs – og skapa samfélag þar sem öll börn eiga sinn stað.

Umsjón; Elín Elísabet Jóhannsdóttir, fræðslustjóri Biskupsstofu.

Staður: stærri salur

Kynningarbásar


Hið íslenska biblíufélag er elsta starfandi félag á Íslandi og markmið þess er að vinna að útgáfu, útbreiðslu og notkun Biblíunnar.

Hjálparstarf kirkjunnar starfar að þróunarsamvinna og mannúðar­aðstoð á alþjóðavettvangi, aðstoð við fólk í félagslegri neyð á Íslandi, fjáröflun og fræðsla um starfið, gildi þróunarsamvinnu og mannúðar- og mannréttindamál.

Keflavíkurkirkja – Fólk, fjölbreytni og fjölhæfni prýðir Keflavíkurkirkju. Sífelld sköpun á sér stað í safnaðarstarfi. Himnavoðir, hópur kvenna sem vinnur að margvíslegri handavinnu, hafa m.a. handgert bænaklúta fyrir skírnarbörn og hekla bókamerkiskrossa fyrir fermingarbörn. Kærleiksumgjörð um messuþjóna er mikilvæg og í upphafi vetrar var gerð handbók messuþjónum til stuðnings í starfi og til fróðleiks. Afrakstur alls þessa mun Keflavíkurkirkja leggja á borð á Kirkjudegi Kjalarnessprófastdæmis.

Kirkjumiðstöðin Löngumýri

Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi voru stofnuð áðrið 2013 og móðursamtökin heita Contemplative Outreach. Hlutverk samtakanna er að stuðla að útbreiðslu Kyrrðarbænar og annarra íhugunar- og bænaaðferða úr kristinni hugleiðslu­hefð ásamt því að veita þeim sem þær ástunda stuðning með bænahópum í kirkjum og á netinu, kyrrðardögum, kennsluefni, námskeiðum, fyrirlestrum o.fl.  Þá verður boðið upp á kyrrðarbæn í kapellunni kl. 12:30-13:00.

Njarðvíkursókn býður upp á fjölbreytilegt safnaðarstarf fyrir alla aldurshópa. Samverur barna og unglinga og fyrir foreldra, opið hús með helgistund og léttum hádegisverð.  Vinavoðir eru hópur kvenna sem prjóna og hekla fyrir margvíslega handavinnu í þágu samfélagsins.  Messuþjónastarf er í uppbyggingu auk öflugs kórs Njarðvíkursóknar sem verður kynnt á Kirkjudegi Kjalarnessprófastsdæmis.

Svæðisstjóri æskulýðsmála miðlar og vinnur að aðgerðaráætlunum út frá Fræðslustefnu Þjóðkirkjunnar fyrir sóknirnar í prófastsdæmunum á höfuðborgarsvæðinu m.a. með styðjandi ráðgjöf – hvað varðar skipulag í barna- og æskulýðsstarfi og að standa að viðburðum í samstarfi við sambönd og hreyfingar, sem einbeita sér að fræðslu og uppbyggingu fyrir þjóðkirkjuna.

Vinir í bata er hópur fólks sem tileinka sér Tólf sporin sem lífstíl sem bíður upp á sporafundi í ýmsum kirkjum. 12 sporin andlegt ferðalag er fyrir alla. Ekki er gengið út frá því að fólk eigi við nein skilgreind vandamál að stríða, fíkn eða slíkt, heldur er um að ræða tækifæri til sjálfsskoðunar og almenna uppbyggingu til að geta betur tekist á við áskoranir lífsins.

Þjónustumiðstöð Þjóðkirkjunnar – Hlutverk fræðslusviðs er að móta stefnu í fræðslumálum Þjóðkirkjunnar. Tilgangurinn er að styðja söfnuði í því að boða kristna trú og vernda og viðhalda almennri þekkingu á henni. Unnið er samkvæmt fræðslustefnu kirkjunnar en þar er gengið út frá uppbyggilegum og andlega nærandi þáttum kristinnar trúar. Áhersla er lögð á gerð fjölbreytilegs og nútímalegs fræðsluefnis og námskeiða sem nýta má í kirkjustarfi annars vegar og úti í þjóðfélaginu hins vegar.

Kynningar


12:30 Kyrrðarbænarsamtök Íslands bjóða upp á kyrrðarbæn í kapellunni. Lengd 30 mín.

12:15 Kvikmyndasýning í minni salnum: Til Dyflinnar – Kór Keflavíkurkirkju fer á slóðir U2. Lengd 45 mín.

14:00 Kynning á nýrri heimasíðu og markaðsátaki kirkjunnar starfi og þjónustu Kjalarnessprófastsdæmis í stærri sal. Lengd 30 mín.

Helgistund og móttaka


Helgistundin hefst kl. 14:30 í kirkjunni og þemað er gleði, hvatning og uppbyggilegt samfélag. Almennur safnaðarsöngur verður áberandi og fjölbreytt þátttaka sem flestra verður í forgrunni. Að lokinni messu verður móttaka kl. 15:00 í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og við munum eiga saman notalega stund.

Verið velkomin á Kirkjudag Kjalarnessprófastsdæmis 2026

Við kveikjum einu kerti á – jóladagatal kirkjunnar

Eftir Fréttir

Kjalarnessprófastsdæmi í samstarfi við Þjóðkirkjuna stendur nú í sjötta sinn fyrir jóladagatali. Yfirskrift dagatalsins í ár er: „Við kveikjum einu kerti á“.

Fyrir hvern aðventunnar opnar nýr gluggi með uppörvandi myndbandi þar sem fólk úr kirkjustarfinu með fjölbreyttan bakgrunn fjallar um boðskap og innihald aðventunnar. Myndböndin eru tekin upp í kirkjum á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Garðabæ, Álftanes og Mosfellsbæ, Eyjafirði, Akureyri, Dalvík, Fnjóskadal og Reykjavík. Jóladagatalið má finna hér Facebókasíðu jóladagatalsins.

Markmiðið með jóladagatalinu er að minna á boðskap aðventunnar sem er tími vonar og eftirvæntingar þegar við íhugum hvað gefur lífinu gildi og tilgang. Um leið gefst tækifæri til að sjá kirkjurnar okkar í hátíðlegum jóla- og aðventubúningi.

Njótum aðventunnar.

 

Sumarmessur í allt sumar

Eftir Fréttir

Kærkomið íslenskt sumar ber með sér léttari og bjartari lund sem skilar sér í helgihaldinu og samfélaginu eins og sjá má í sameiginlegri dagskrá kirknana í prófastsdæminu nú í júní. Nú yfir sumarið eins og undanfarin sumur taka söfnuðir prófastsdæmisins höndum saman og standa fyrir fjölbreyttu helgihaldi yfir sumartímann á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi og Mosfellsbæ, Kjós og Kjalarnesi.

Sumarmessur á Suðurnesjum

Um árabil hafa kirkjurnar á Suðurnesjum átt í samstarfi um helgihaldið yfir sumartímann og messað til skiptis í kirkjunum í Grindavík, Reykjanesbæ, Vogum, Höfnum, Garðinum og Sandgerði. Um er að ræða kvöldmessur sem hefjast kl. 20:00 og þar ræður fjölbreytnin ríkjum og boðið m.a. upp á göngu-, dýrablessun-,  kósýmessur og messumeistarann. Nánari upplýsingar um Sumarmessur á Suðurnesjum.

Sumarmessur í Garðakirkju

Í Garðakirkju kl. 11:00 skipta prestar, djáknar, organistar og starfsfólk Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi með sér þjónustunni við messu hvern sunnudag yfir sumarið. Á eftir er boðið upp á kaffi og notalegt samfélag í hlöðinni á burstarbænum Króki, þar sem ýmislegt verður á boðstólunum. Streymt er frá messunum á Facebókarsíðunni Sumarmessur í Garðakirkju.

Sumarmessur í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós

Söfnuðirnir í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós vinna saman með sameiginlegum sumarmessur.  Þar er íslenska sveitakirkjan í forgrunni og boðið m.a. upp á göngu-, kvöld- og hestamessu í bland við annað. Á Facebókarsíðu Sumarmessur í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós er að finna upplýsingar um helgihaldið.

Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis

Eftir Fréttir

Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður þriðjudaginn 6. maí í Víðistaðakirkju kl. 17:30-20:30.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Helgistund
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla héraðsnefndar um starfsemi liðins árs þar sem m.a. skal getið um framkvæmd ályktana og samþykkta síðasta héraðsfundar
  4. Ársreikningar héraðssjóðs til samþykktar fyrir árið 2024
  5. Starfsáætlun héraðsnefndar þ.m.t. styrkir og fjárhagsáætlun héraðssjóðs fyrir árið 2025 til samþykktar
  6. Starfsskýrslur sókna, nefnda, héraðsprests og annarra starfsmanna prófastsdæmisins lagðar fram svo og ársreikningar sókna og kirkjugarða
  7. Mál er varða kirkjuþing, tekin til umfjöllunar og afgreiðslu
  8. Samþykktir prestastefnu og leikmannastefnu kynntar
  9. Ákvörðun um greiðslur til kjörinna héraðsnefndarmanna fyrir störf þeirra á liðnu ári
  10. Sameiginleg mál sóknarnefnda er varða rekstur og starfsmannahald
  11. Kosningar
  12. Aðrar kosningar eða tilnefningar sem heyra undir héraðsfund
  13. Önnur mál
    – „Vísa mér veg þinn Drottinn“ – um pílagrímaferðir og Jakobsveg. Sr. Elínborg Sturludóttir, Dómkirkjuprestur.

Samkvæmt starfsreglum um héraðsfundi og héraðsnefndir nr. 965/2006 er héraðsfundur aðalfundur prófastsdæmis og fjallar um málefni sem varða starf þjóðkirkjunnar í prófastsdæminu og samræmir og markar sameiginlegt kirkjustarf í prófastsdæminu. Þar fara fram starfsskil héraðsnefndar vegna síðasta árs, svo og reikningsskil héraðssjóðs.

Á héraðsfund mæta þjónandi prestar og djáknar í prófastsdæminu, safnaðarfulltrúar og formenn sóknarnefnd eða varamenn þeirra, kirkjuþingsmenn og fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu. Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt. Á héraðsfundi hafa atkvæðisrétt tveir fulltrúar frá hverri sókn og starfandi prestar og djáknar.

Verið velkomin á héraðsfund Kjalarnessprófastsdæmi.

„Sjá, himins opnast hlið“ – Jóladagatalið 2024

Eftir Fréttir

Kjalarnessprófastsdæmi í samstarfi við Þjóðkirkjuna og Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og Vesturlandsprófstsdæmi stendur nú í fimmta skiptið fyrir jóladagatali.

Yfirskrift dagatalsins í ár er: „Sjá, himins opnast hlið“ og er sótt í sálm nr. 36 eftir Björn Halldórsson frá Laufási.

Fyrir hvern dag desember fram að jólum er opnaður nýr gluggi með uppörvandi myndbandi sem varir í eina mínútu. Fólk með margs konar bakgrunn úr starfi kirkjunnar fjallar um boðskap og innihald aðventunar.

Myndböndin eru tekin upp í kirkjum Kjalarnessprófastsdæmis, einnig í Reykjavík og Snæfellsnesi.

Jóladagatalið má finna hér.

 

Fjölmenni á tónleikum barna- og unglingakóra

Eftir Fréttir

Barnakóramót prófastsdæmisins fór fram í Vídalínskirkju 10 . nóvember síðastliðinn undir yfirskriftinni: „Við flytjum friðarins kveðju“ Um 110 börn og unglingar tóku þátt í deginum sem hófst með sameiginlegri æfingu kóranna. Mótinu lauk með vel heppnuðum tónleikum þar sem boðið var upp á fjölbreytta efnisskrá þar sem friður var þemað. Hvert sæti var skipað í Vídalínskirkju og þurfti að bæta við stólum, en um 500 manns sóttu tónleikana. Ásamt kórunum kom fram Friðrik Ómar og þeim lauk með tónlistaratriði frá VÆB. Tónleikarnir voru í beinu streymi sem er hægt að nálgast á Facebóksíðu prófastsdæmisins.

Kórarnir sem tóku þátt voru: Himinn og jörð og Regnbogaraddir frá Keflavíkurkirkju, unglingakór Hafnarfjarðarkirkju, skólakór Sandgerðisskóla, barna- og unglingakór Vídalínskirkju og Söngfuglar – barnakór Víðistaðakirku. Við þökkum kórnunum fyrir þátttökuna og barnakórstjórunum fyrir þeirra dýrmæta framlag einkum Arnóri B. Vilbergssyni, organista Keflvíkurkirkju, sem hafði veg og vanda að undirbúningi mótsins og tónleikanna. Einnig starfsfólki Vídalínskirkju fyrir hlýjar og góðar móttökur.

„Við flytjum friðarins kveðju“

Eftir Fréttir
Barna- og unglingakórar flytja fjölbreytta efnisskrá tengda frið ásamt Friðriki Ómari og VÆB í Vídalínskirkju, sunnudaginn 10. nóvember, kl. 16:00.
Ókeypis aðgangur og verum hjartanlega velkomin.
Barna- og unglingkórar sem taka þátt:
Regnbogaraddir frá Keflavíkurkirkju
Skólakór Sandgerðisskóla
Barna- og unglingakór Vídalínskirkju
Himinn og jörð frá Keflavíkurkirkju
Söngfuglar – barnakór Víðistaðakirkju
Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju

Kirkjulistavika 2024

Eftir Fréttir

Dagana 3.-10. nóv– 10. nóv. fer fram kirkjulistavika í söfnuðum prófastsdæmisins. Nánari upplýsingar um viðburðina: Kirkjulistavika.

Þema kirkjulistavikunnar er sótt í Matteusarguðspjall 5.9: „Sælir eru friðflytjendur“, en það var einnig þema Kirkjudaga sem haldnir voru nú í ágúst. Að vera friðflytjandi er m.a. er vinna að einingu og samkennd. Listin tjáir tilfinningar, skilning og leyndardóma og hún á sér engin landamæri eða er bundin við tungumál. Listin tengir fólk saman, nærir samfélag og opnar augun fyrir fegurðinni sem elskar friðinn.

 

Leiðarþing Kjalarnssprófastsdæmis

Eftir Fréttir

Leiðarþing Kjalarnessprófastsdæmis verður miðvikudaginn 23. október, kl. 18:00 í Vídalínskirkju.

Leiðarþing er einskonar auka héraðsfundur prófastsdæmisins og er haldinn í aðdraganda kirkjuþings á hverju hausti. Hér má finna málaskrá kirkjuþings 2024-2025 sem verður til kynningar og umræðu á fundinum. Kirkjuþing er æðsta stjórnvald kirkjunnar og setur þjóðkirkjunni starfsreglur.

Öllum þjónandi prestum, djáknum, formönnum sóknarnefnda og safnaðarfulltrúum ber að sækja leiðarþingið. Organistar og  starfsfólk safnaðanna hefur rétt til fundarsetu og er fundurinn jafnframt opin öllu áhugafólki um kirkjulegt starf.

Verið velkomin á leiðarþing 2024 og neðangreint er dagskrá leiðarþingsins.

Dagskrá

18:00 Helgistund
18:15 Fundarstörf hefjast
• Kirkjuþingsfulltrúar greina frá helstu málum kirkjuþings
• Önnur mál

19:30 Kvöldverður
20:00 Fundi framhaldið
21:00 Fundarslit

Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis

Eftir Fréttir

Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður 3. apríl í Ástjarnarkirkju kl. 17:30-20:30.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Helgstund
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla héraðsnefndar um starfsemi liðins árs þar sem m.a. skal getið um framkvæmd ályktana og samþykkta síðasta héraðsfundar
  4. Ársreikningar héraðssjóðs til samþykktar fyrir árið 2023
  5. Starfsáætlun héraðsnefndar þ.m.t. styrkir og fjárhagsáætlun héraðssjóðs fyrir árið 2023 til samþykktar
  6. Starfsskýrslur sókna, nefnda, héraðsprests og annarra starfsmanna prófastsdæmisins lagðar fram svo og ársreikningar sókna og kirkjugarða
  7. Mál er varða kirkjuþing, tekin til umfjöllunar og afgreiðslu
  8. Samþykktir prestastefnu og leikmannastefnu kynntar
  9. Ákvörðun um greiðslur til kjörinna héraðsnefndarmanna fyrir störf þeirra á liðnu ári
  10. Sameiginleg mál sóknarnefnda er varða rekstur og starfsmannahald
  11. Kosningar
  12. Aðrar kosningar eða tilnefningar sem heyra undir héraðsfund
    13. Önnur mál

– „Söfnuður í kviku jarðhræringa“ – sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavíkurkirkju

– „Kynning á aðgerðaráætlun um að efla kynningu á starfi safnaðanna” – Leópold Sveinsson, framkvæmdarstjóri Garðasóknar

– „Verkefni prófastsdæmisns í stóru sem smáu“ – sr. Stefán Már Gunnlaugsson, héraðsprestur

– „Kirkjudagar 2024“ – kynning

Samkvæmt starfsreglum um héraðsfundi og héraðsnefndir nr. 965/2006 er héraðsfundur aðalfundur prófastsdæmis og fjallar um málefni sem varða starf þjóðkirkjunnar í prófastsdæminu og samræmir og markar sameiginlegt kirkjustarf í prófastsdæminu. Þar fara fram starfsskil héraðsnefndar vegna síðasta árs, svo og reikningsskil héraðssjóðs.

Á héraðsfund mæta þjónandi prestar og djáknar í prófastsdæminu, safnaðarfulltrúar og formenn sóknarnefnd eða varamenn þeirra, kirkjuþingsmenn og fulltrúar prófastsdæmisins á leikmannastefnu. Starfsmönnum sókna og prófastsdæmis svo og öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt. Á héraðsfundi hafa atkvæðisrétt tveir fulltrúar frá hverri sókn og starfandi prestar og djáknar.

Verið velkomin á héraðsfund Kjalarnessprófastsdæmi.