Ég býð ykkur öll velkomin á þennan fund. Að þessu sinni varð það að ráði að sameina hefðbundna vorfundi presta og leikmanna, en fundurinn er opinn öllu sóknarnefndafólki, organistum og öðrum sem sýnt hafa áhuga á að koma, svo lengi sem húsrúm leyfir. Nánar
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, sem er nýkjörinn biskup Íslands, var gestur á vorfundi presta, djákna og formanna sóknarnefnda í Kjalarnessprófastsdæmi í gær. Á fundinum var starfið í prófastsdæminu kynnt stuttlega og fundarmönnum gafst tækifæri til samtals við hinn nýkjörna biskup. Um þrjátíu manns úr prófastsdæminu öllu sóttu fundinn. Nánar
Kirkjuráð hefur nú skipað nýja æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar. Er það gert samkvæmt ályktun Kirkjuþings 2011. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar úr öllum prófastsdæmum auk fulltrúa frá Æskulýðssambandi þjóðkirkjunnar og frá Biskupsstofu. Fulltrúi Kjalarnessprófastsdæmis eru sr. Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur á Útskálum, og Torfey Rós Jónsdóttir. Nánar
Hinn almenni bænadagur er að venju haldinn 5. sunnudag eftir páska, sem nú er hinn 13. maí. Á hinum almenna bænadegi er löng hefð fyrir því að söfnuðir landsins sameinist um eitt fyrirbænarefni. Að þessu sinni er yfirskrift bænadagsins: „Biðjum fyrir kirkju og þjóð á krossgötum.“ Nánar
Sr. Agnes M. Sigurðardóttir sem var kjörin biskup Íslands, verður gestur á vorfundi Kjalarnessprófastsdæmisins, miðvikudaginn 9. maí næstkomandi. Á fundinum verður rætt um starfið í prófastsdæminu, stöðu mála og það sem er framundan, sýnina á erindi þjóðkirkjunnar og brýnustu verkefni hennar. Nánar
Nýlegar athugasemdir