Á hverjum degi á aðventunni og fram að jólum munu birtast á falleg og uppörvandi myndskeið þar sem fólk með allskonar bakgrunn úr starfi kirkjunnar fjallar um þýðingu og boðskap aðventunar. Yfirskrift dagatalsins er „Kom þú, kom“ og er sótt í sálm nr. 70: „Kom þú, kom vor Immanúel. Orðið aðventa er úr latínu og merkir koman eða sá sem kemur og vísar til undirbúningstímans fyrir jól þegar við undirbúum komu Jesú Krists.
Jóladagatal er samstarfsverkefni prófastdæmisins og Þjóðkirkjunar. Myndskeiðin eru frá kirkjum á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Álftanesi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Kjós og Kjalarnesi. Markmiðið með jóladagatalinu er að minna á boðskap aðventunnar sem er tími vonar og eftirvætingar þegar við íhugum og skoðum hvað gefur lífinu gildi og tilgang. Einnig að vekja athygli á margvíslegum mannauði kirkjunnar, sjálfboðaliðum, starfsfólki og þátttakendum í kirkjustarfinu.
Hægt er að fylgjast með jóladagatalinu hér á heimasíðunni eða Facebókasíðu prófastsdæmisins.
Njótum aðventunnar.
Sunnudaginn 20. júní, vígði Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, keltneskt útialtari á Esjubergi á Kjalarnesi. Það er reist til að minnast fyrstu kirkjunnar sem um er getið í íslenskum ritheimildum, Landnámubók og Kjalnesingasögu, og landnámsmaðurinn, Örlygur Hrappsson, mun hafa reist á Esjubergi um árið 900.
Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður fimmtudaginn 20. maí í safnaðarheimili Innri-Njarðvíkurkirkju, Reykjanesbæ og hefst með helgistund kl. 17:30. Héraðsfundur fyrir árið 2020 var ekki haldinn vegna samkomutakmarkanna og því verða mál frá þeim fundi afgreidd núna.
Nú í desember fram að jólum verður jóladagatal í samstarfi við kirkjur á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Álftanesi,Garðabæ, Mosfellsbæ, Kjós og Kjalarnesi. Á hverjum degi birtist stutt myndband þar sem fólk með margvíslegan bakgrunn úr kirkjustarfinu fjallar um vonina, aðventuna og jólin. Yfirskrift dagatalsins er „Sú von er sönn“.
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, hefur útnefnt sr. Hans Guðberg Alfreðsson sem prófast í Kjalarnessprófastsdæmi frá og með 1. desember.
daginn 4. okt. kl. 14:00 mun prófastur, sr. Þórhildur Ólafs, prédika við sameiginlega guðsþjónustu Garða- og Bessastaðasóknar í Garðakirkju. Guðsþjónustan er hluti af vístasíu prófasts sem fram fer þennan dag í Vídalíns- og Garðakirkju, en áður hefur hún vísterað Bessastaðasókn. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Henning Emil Magnússon þjóna fyrir altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og organisti er Jóhann Baldvinsson. Allir velkomnir.


Nýlegar athugasemdir