Nú í desember fram að jólum verður jóladagatal í samstarfi við kirkjur á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Álftanesi,Garðabæ, Mosfellsbæ, Kjós og Kjalarnesi. Á hverjum degi birtist stutt myndband þar sem fólk með margvíslegan bakgrunn úr kirkjustarfinu fjallar um vonina, aðventuna og jólin. Yfirskrift dagatalsins er „Sú von er sönn“.
Markmiðið með jóladagatalinu er að minna á boðskap aðventunnar sem er tími vonar, þegar við beinum sjónum okkar að komu Jesú Krists og íhugum og skoðum hvað það er sem gefur lífinu gildi í raun og veru. Einnig að vekja athygli á öflugum mannauði kirkjunnar, sjálfboðaliðum, starfsfólki og þátttakendum í kirkjustarfinu.
Hægt er að fylgjast með jóladagatalinu hér á heimasíðunni eða Facebókasíðu prófastsdæmisins.
Njótum aðventunnar.
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, hefur útnefnt sr. Hans Guðberg Alfreðsson sem prófast í Kjalarnessprófastsdæmi frá og með 1. desember.
daginn 4. okt. kl. 14:00 mun prófastur, sr. Þórhildur Ólafs, prédika við sameiginlega guðsþjónustu Garða- og Bessastaðasóknar í Garðakirkju. Guðsþjónustan er hluti af vístasíu prófasts sem fram fer þennan dag í Vídalíns- og Garðakirkju, en áður hefur hún vísterað Bessastaðasókn. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Henning Emil Magnússon þjóna fyrir altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og organisti er Jóhann Baldvinsson. Allir velkomnir.


Í október 2017 stóð Kjalarnessprófastsdæmi fyrir hátíðartónleikum í tilefni af 500 ára siðbótarafmælinu. Nú eru upptökur frá tónleikunum aðgengilegar á vefnum og má finna á
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar er næsta sunnudag, 1. mars, en hann hefur verið haldinn fyrsta sunnudag marsmánaðar í meira en 60 ár. Á þeim degi er athyglinni einkum beint að börnum og unglingum og þau taka virkan þátt í helgihaldi kirkjunnar. Nú eins og undanfarin ár stendur Æskulýðssamband kirkjunnar í Kjalarnessprófastsdæmi fyrir söfnun til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í Úganda í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar. 
Nýlegar athugasemdir