Prófastur, Dr. Gunnar Kristjánsson, hélt í vikunni árlega haustfundi sína. Fyrst var fundað með prestum og djáknum á miðvikudeginum 19.sept og síðan með formönnum sóknarnefnda fimmtudaginn 19.sept. Prófastur gerði þar meðal annars kunnnugt að hann myndi vísitera allar sóknir prófastsdæmisins nú á þessu hausti. Prófastur fékk einnig að heyra af stöðu mála í söfnuðunum frá formönnum. Af því var ljóst að margt spennandi er á döfinni nú þegar hauststarf kirkna er farið af stað. Að auki opnaði prófastur fyrir umræður um stöðu bænarinnar í almannarými og spunnust áhugaverðar umræður um málið bæði meðal presta & djákna sem og sóknarnefndaformanna.
Kjalarnessprófastdæmi hefur tímabundið fengið til liðs við sig nýjan starfsmann. Sá er Grétar Halldór Gunnarsson. Grétar mun sinna margvíslegum störfum fyrir hönd prófastdæmisins fram að áramótum. Grétar er guðfræðingur að mennt og er með meistaragráðu frá Princeton Seminary í Bandaríkjunum. Hann er einnig við það ljúka doktorsnámi í guðfræði við Háskólann í Edinborg og hefur margvíslega reynslu af störfum fyrir þjóðkirkjuna. Kjalarnessprófastur og prófastsdæmið býður Grétar velkominn til starfa.
Tölvupóstfang Grétars er gretar.halldor.gunnarsson (hjá) kirkjan.is og hægt er að ná í hann í s. 664-6610
Dr. Gunnar Kristjánsson prófastur heldur fyrirlestur í tengslum við útgáfu bókar hans:
Marteinn Lúther – Svipmyndir úr siðbótarsögu. Nánar
Stóru þemu bænadaga og páska eru eftirfylgdin við Jesú og að fylgja dæmi hans. Nánar
Prófastur hefur boðað til héraðsfundar Kjalarnessprófastsdæmis sem haldinn verður í safnaðarheimili Hvalsnessóknar í Sandgerði miðvikudaginn 12. mars næstkomandi kl. 17:30. Nánar
Aðventufundur presta og djákna er fastur liður á jólaföstu Kjalarnessprófastsdæmis. Þá koma prestar og djáknar prófastsdæmisins saman og ræða prédikunarundirbúning jólanna. Venja er að fá góðan gest til fundarins og að þessu sinni er það rithöfundurinn Eiríkur Guðmundsson sem mun taka þátt í samtalinu. Nánar
Margrét Gunnarsdóttir hefur verið ráðin djákni við Bessastaðasókn. Þann 10.nóvember var hún sett inn í embætti í Bessastaðakirkju. Dr.Gunnar Kristjánsson prófastur setti hana inn í embætti og þjónaði við guðsþjónustuna ásamt prestum og sóknarnefndarfólki safnaðarins. Að messu lokinni héldu kirkjugestir yfir í safnaðarheimili sóknarinnar að Brekkuskógum 1 í kaffisölu safnaðarins. Allur ágóði af kaffisölunni rennur til tækjakaupa landspítalans en þetta ár hefur Þjóðkirkjan ásamt öðrum safnað fyrir kaupum á línuhraðli. Kjalarnessprófastsdæmi óskar Bessataðakirkju til hamingju með nýjan djákna og óskar Margréti Guðs blessunar í lífi og starfi.
Föstudaginn fimmtánda nóvember var haldið námskeið í hugvekjugerð í safnaðarheimili Háteigskirkju. Námskeiðið, sem haldið var af Biskupsstofu, ÆSKR ,ÆSKÞ, KFUM og Kjalarnesprófastsdæmi, tókst afar vel og voru rétt um fjörutíu þáttakendur mættu til leiks.
Fjölmennasta landsmót æskulýðsfélaga til þessa var haldið um síðustu helgi. Að þessu sinni var mótið haldið í Reykjanesbæ í Kjalarnessprófastsdæmi. Á sjöunda hundrað ungmenna og leiðtoga komu þar saman undir yfirskriftinni Energí og trú, sem er yfirskrift verkefnis sem Keflavíkurkirkja hefur staðið að frá árinu 2011 og miðar að því að efla og hvetja ungt fólk á Suðurnesjum til sjálfstæðis og athafna með fjölbreyttum námskeiðum og stuðningi.
Haustnámskeið í hugvekjugerð
Föstudaginn 15. nóvember næstkomandi verður haldið námskeið í hugvekjugerð fyrir æskulýðsfulltrúa, presta, djákna og nemendur í guðfræðideild HÍ. Námskeiðið verður haldið í safnaðarheimili Háteigskirkju – í Setrinu – og hefst það kl. 9.
Nýlegar athugasemdir