Á pálmasunnudag verður mikið um að vera í Reynivallaprestakalli, þegar biskup Íslands vísiterar söfnuðina í Brautarholtssókn og Reynivallasókn. Nánar
Farskóla leiðtogaefnanna 2012-2013 var slitið við gleðilega athöfn í Víðistaðakirkju í gær. 38 unglingar hafa stundað nám í skólanum í vetur undir stjórn Sigríðar Rúnar og Guðjóns. Nánar
Hér má lesa fundargerð héraðsfundar sem fór fram þriðjudaginn 19. mars á Álftanesi. Nánar
Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis 2013 verður haldinn í Íþróttaheimili Álftaness þriðjudaginn 19. mars. Á héraðsfund, sem er aðalfundur prófastsdæmisins, koma allir prestar, djáknar, fulltrúar sóknanna og kirkjuþingsfulltrúar prófastsdæmisins. Nánar
Grunnnámskeið er ætlað þeim sem eru 17 ára og eldri og starfa í barna- og unglingastarfi kirkjunnar. Á námskeiðinu eru teknir fyrir grunnþættir í starfi með börnum og unglingum í kirkjunni. Markmiðið með námskeiðinu að gera leiðtogana betur í stakk búna til að bera ábyrgð á barna- og unglingastarfi í söfnuðum þjóðkirkjunnar. Nánar
Sjálfsstyrking og áhrif ungs fólks í kirkjunni er efni námskeiðs sem æskulýðsstarf kirkjunnar á suðvesturhorninu heldur í í Seltjarnaneskirkju miðvikudaginn 6. mars kl 18-21.30. Fyrirlestrar og iðja er í höndum Ilmar Kristjánsdóttur, leikkonu, og Halldórs Elíasar Guðmundssonar, djákna og æskulýðsfulltrúa. Nánar
Undirbúnings- og fræðslufundur um biskupsvísitasíur verður haldinn þriðjudaginn 19. febrúar í Vídalínskirkju í Garðabæ. Fundurinn er liður í undirbúningi fyrstu vísitasíu biskups Íslands, Agnesar M. Sigurðardóttur, sem verður í Kjalarnessprófastsdæmi í vor. Nánar
Á kyrrðardögum um fyrirgefninguna verður hin kristna íhugunarbæn (Centering Prayer) iðkuð undir leiðsögn prests, djákna, jógakennara og græðara. Kyrrðardagarnir eru í Skálholti dagana 7. – 10. mars 2013. Nánar
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, mun vísitera söfnuði í Kjalarnessprófastsdæmi nú á vormánuðum. Þetta er fyrsta biskupsvísitasía hennar og vinnur starfsfólk biskupsstofu og prófastsdæmisins nú hörðum höndum að því að skipuleggja heimsóknir biskups til allra sókna í prófastsdæminu, sem eru 16 talsins. Nánar
Skemmtilegt og fróðlegt námskeið um þátttökukirkjuna og ungmennalýðræði verður haldið í Skálholti 2. febrúar. Æskulýðsvettvangurinn á suðvestuhorninu í samstarfi við Biskupsstofu og ÆSKÞ stendur fyrir námskeiðinu, með þátttöku frá kirkjuþingi og kirkjuþingi unga fólksins. Fjallað verður um hvernig kirkjan getur virkjað og vætt ungt fólk á öllum aldri til þátttöku í lifandi og ábyrgu samfélagi, undir yfirskriftinni HUNANG, sem vísar til hinnar sætu afurðar samstarfs og skipulags. Nánar
Nýlegar athugasemdir