Skip to main content

Viðtal

Eftir Fréttir

Dr. Gunnar Kristjánsson segir okkur frá tilurð menningardagsins í Kjalarnessprófastsdæmi.

Söfnuðir vilja öflugan samstarfsvettvang

Eftir Fréttir

Haustfundir presta og sóknarnefndarfólks með prófasti, fjölluðu um málefni þjóðkirkjunnar á landsvísu og heima í héraði. Söfnuðirnir vilja styrkja starfið í heimabyggð og efla samstarfsvettvang til að mæta þrengri fjárhag og erfiðu starfsumhverfi. Nánar

Prédikunarseminar í Skálholti 10. – 12. október

Eftir Fréttir

Prédikunarseminar Kjalarnessprófastsdæmis í Skálholti sem haldið hefur verið undanfarin ár verður að þessu sinni 10. – 12. október. Aðalfyrirlesari verður Wilfried Engemann sem ræðir í erindum sínum m.a. um samtalsprédikanir og mannskilning í málfari helgihaldsins. Nánar

Menningardagur – Lágafellssókn

Eftir Fréttir

Þann 31. október verður blásið til hátíðar í Kjalarnesprófastdæmi. Þá verður menningardagurinn ,,Opnar kirkjur“ haldinn hátíðlegur í öllum kirkjum prófastdæmisins. Hér birtast nokkrar skemmtilegar myndir úr starfinu okkar í Lágafellsókn, njótið og takið daginn frá.

Námskeið um forvarnir gegn kynferðisbrotum 12. nóvember

Eftir Fréttir

Námskeið fyrir presta, djákna, æskulýðsfulltrúa og aðra þá sem standa fyrir barna- og unglingastarfi í kirkjunni og KFUM og KFUK, verður haldið föstudaginn 12. nóvember kl. 10-15 í Hjallakirkju Kópavogi.

Á námskeiðinu verður fjallað um hvaða áhrif kynferðislegt ofbeldi hefur á þolendur með sérstakri áherslu á börn og unglinga. Þá verður fjallað um verkferla kirkjunnar í meðferð kynferðisbrota. Það er mikilvægt að starfsfólk þekki þær reglur og verkferla sem fyrir hendi eru komi upp ásakanir um kynferðislegt ofbeldi. Gefinn verður góður tími til fyrirspurna og umræðna um málefnið.

Dagskrá

10.00 Helgistund

10.30 Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson kynnir verkferla Fagráðs um

meðferð kynferðisbrota. Umræður um hvernig bregðast skuli við komi slík mál upp.

12.00 Matur

13.00 Ólöf Ásta Farestveit ræðir um einkenni ofbeldis. Umræður.

15.00 Helgistund

Skráning fer fram á fræðslusviði Biskupsstofu á netfangið kristin.arnardottir@kirkjan.is fyrir miðvikudaginn 10. nóvember

Verð: 4.500 kr.

Námskeiðið er samvinnuverkefni Kjalarnessprófastsdæmis, ÆSKR, ÆSKÞ, Biskupsstofu, KFUM. og KFUK.

Vinsamlegast athugið að þetta er breyting frá áður auglýstri dagskrá sem var dreift á Leiðarþingi. Námskeiðið er haldið föstudaginn 12. nóvember en ekki laugardaginn 13. nóvember.

Menningardagur Kjalarnessprófastsdæmis 31. október

Eftir Fréttir

Menningardagur Kjalarnessprófastsdæmis verður haldinn á siðbótardaginn 31. október. Hugmyndin að baki deginum er að laða fólk til kirkju og leyfa því upplifa andrúmsloftið þar. Það er á valdi hvers safnaðar fyrir sig hvort og hvers konar dagskrá hann býður upp á. Nánar

Jógaslökun og fyrirbænarþjónusta fyrir konur

Eftir Fréttir

Í Vídalínskirkju í Garðabæ er að hefjast nýjung í safnaðarstarfi á Íslandi sem sprettur upp úr bænahópi kvenna í kirkjunni. Bænahópurinn hefur verið starfræktur í tvö ár en í haust var ákveðið að þróa bænastarfið áfram og finna leiðir til að bjóða fleiri konum í hópinn. Nánar