Laugardaginn 11. febrúar, kl. 16:00 verður kórahátíð Kjalarnessprófastsdæmis í Vídalínskirkju í Garðabæ. Yfir 150 kórfélagar frá öllum kórum safnaða prófastsdæmisins taka þátt og boðið verður upp á fjölbreytta efnisskrá. Aðgangur ókeypis og verum öll hjartanlega velkomin. Nánar
Á aðventunni og fram að jólum munu birtast uppörvandi myndskeið þar sem fólk með margskonar bakgrunn úr starfi kirkjunnar fjallar um þýðingu og boðskap aðventunar. Yfirskrift dagatalsins í ár er „Slá þú hjartans hörpu strengi“ og er sótt í sálm nr. 3 eftir Valdimar Briem. Orðið aðventa er úr latínu og merkir koman eða sá sem kemur og vísar til undirbúningstímans fyrir jól þegar við undirbúum komu Jesú Krists.
Jóladagatal er samstarfsverkefni prófastdæmisins, Þjóðkirkjunar og einnig tekur Suðurlandsprófastsdæmis þátt í dagatalinu að þessu sinni. Þetta er þriðja skiptið sem prófastsdæmið stendur að gerð jóladagatalsins.. Myndskeiðin eru frá kirkjum á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Álftanesi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Suðurlandi. Markmiðið með jóladagatalinu er að minna á boðskap aðventunnar sem er tími vonar og eftirvæntingar þegar við íhugum og skoðum hvað gefur lífinu gildi og tilgang. Einnig að vekja athygli á margvíslegum mannauði kirkjunnar, sjálfboðaliðum, starfsfólki og þátttakendum í kirkjustarfinu.
Hægt er að fylgjast með jóladagatalinu hér á Facebókasíðu prófastsdæmisins.
Njótum aðventunnar.
Fyrr í sumar var skrifstofa Kjalarnessprófastsdæmis flutt og er til húsa að Fornubúðum 5, Hafnarfirði 2. hæð. Símanúmer er eins og áður 566 7301 og netfang [email protected].


Miðvikudaginn 25. maí, kl. 13:00-15:30 í Ástjarnarkirkju.
Málþingið er opið öllu starfsfólki, sóknarnefndarfólki, sjálfboðaliðum kirkjunnar og öðrum sem láta sig málefnið varða í Kjalarnessprófastsdæmi.
Skráning hjá héraðspresti: stefan.mar.gunnlaugsson(hja)kirkjan.is
Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður fimmtudaginn 17. mars í safnaðarheimili Vídalínskirkju, Garðabæ og hefst með helgistund kl. 17:30. Nánar
Á hverjum degi á aðventunni og fram að jólum munu birtast á falleg og uppörvandi myndskeið þar sem fólk með allskonar bakgrunn úr starfi kirkjunnar fjallar um þýðingu og boðskap aðventunar. Yfirskrift dagatalsins er „Kom þú, kom“ og er sótt í sálm nr. 70: „Kom þú, kom vor Immanúel. Orðið aðventa er úr latínu og merkir koman eða sá sem kemur og vísar til undirbúningstímans fyrir jól þegar við undirbúum komu Jesú Krists.
Jóladagatal er samstarfsverkefni prófastdæmisins og Þjóðkirkjunar. Myndskeiðin eru frá kirkjum á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Álftanesi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Kjós og Kjalarnesi. Markmiðið með jóladagatalinu er að minna á boðskap aðventunnar sem er tími vonar og eftirvætingar þegar við íhugum og skoðum hvað gefur lífinu gildi og tilgang. Einnig að vekja athygli á margvíslegum mannauði kirkjunnar, sjálfboðaliðum, starfsfólki og þátttakendum í kirkjustarfinu.
Hægt er að fylgjast með jóladagatalinu hér á heimasíðunni eða Facebókasíðu prófastsdæmisins.
Njótum aðventunnar.
Sunnudaginn 20. júní, vígði Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, keltneskt útialtari á Esjubergi á Kjalarnesi. Það er reist til að minnast fyrstu kirkjunnar sem um er getið í íslenskum ritheimildum, Landnámubók og Kjalnesingasögu, og landnámsmaðurinn, Örlygur Hrappsson, mun hafa reist á Esjubergi um árið 900. Nánar
Héraðsfundur Kjalarnessprófastsdæmis verður fimmtudaginn 20. maí í safnaðarheimili Innri-Njarðvíkurkirkju, Reykjanesbæ og hefst með helgistund kl. 17:30. Héraðsfundur fyrir árið 2020 var ekki haldinn vegna samkomutakmarkanna og því verða mál frá þeim fundi afgreidd núna. Nánar
Nú í desember fram að jólum verður jóladagatal í samstarfi við kirkjur á Suðurnesjum, Hafnarfirði, Álftanesi,Garðabæ, Mosfellsbæ, Kjós og Kjalarnesi. Á hverjum degi birtist stutt myndband þar sem fólk með margvíslegan bakgrunn úr kirkjustarfinu fjallar um vonina, aðventuna og jólin. Yfirskrift dagatalsins er „Sú von er sönn“.
Markmiðið með jóladagatalinu er að minna á boðskap aðventunnar sem er tími vonar, þegar við beinum sjónum okkar að komu Jesú Krists og íhugum og skoðum hvað það er sem gefur lífinu gildi í raun og veru. Einnig að vekja athygli á öflugum mannauði kirkjunnar, sjálfboðaliðum, starfsfólki og þátttakendum í kirkjustarfinu.
Hægt er að fylgjast með jóladagatalinu hér á heimasíðunni eða Facebókasíðu prófastsdæmisins.
Njótum aðventunnar.
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, hefur útnefnt sr. Hans Guðberg Alfreðsson sem prófast í Kjalarnessprófastsdæmi frá og með 1. desember.
Sr. Hans Guðberg er fæddur 1971 og vígðist sem prestur til Garðaprestakalls (Álftanes og Garðarbær) árið 2006.
Nýlegar athugasemdir