Í dag er allra heilagra messa, en það er dagur helgaður minningu látinna ástvinna. Það er dagur sem við stöldrum við og rifjum upp fallegar og kærar minningar um látna ástvini. Í tilefni þessa dags opnar Kjalarnessprófastsdæmi vef um útför í kirkju, www.utforikirkju.is. Í útför komum við saman til að þakka og kveðja látinn ástvin hinsta sinni, þökkum fyrir líf hans og allt það sem við fengum að njóta með honum. Nánar
Í október 2017 stóð Kjalarnessprófastsdæmi fyrir hátíðartónleikum í tilefni af 500 ára siðbótarafmælinu. Nú eru upptökur frá tónleikunum aðgengilegar á vefnum og má finna á youtube rás prófastsdæmisins.
Hátíðartónleikarnir voru haldnir 28. október í Víðistaðakirkju og 29. október í Hljómahöllinni. Tónleikarnir voru í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og kirkjukóra prófatsdæmisins. Einsöngvarar voru Ragnheiður Gröndal, Bylgja Dís Gunnarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson.
Á tónleikunum var frumflutt Lútherskanta eftir Erirík Á. Sigtryggsson, sem var að sögn höfundar heimsögulegur viðburður þar sem þetta er fyrsta kantata sinnar tegundar. Verkið samanstendur af kórþáttum með samleik hljómsveitar og svo stuttum hljómsveitarþáttum á milli. Stíllinn er blanda af hefðbundnum kórsöng í sálmastíl, nútímalegum ómstreitum, dægurlagakenndum hljómum og rómantískum laglínum. Tónverkið er byggt á „95 tesum“ Lúthers, sem voru birtar 31. október árið 1517 og marka upphaf siðbótarinnar.
Á efniskrá tónleikanna voru auk þess Lifandi vatnið, Guð helgur andi heyr oss nú og Heyr himnasmiður.
daginn 4. okt. kl. 14:00 mun prófastur, sr. Þórhildur Ólafs, prédika við sameiginlega guðsþjónustu Garða- og Bessastaðasóknar í Garðakirkju. Guðsþjónustan er hluti af vístasíu prófasts sem fram fer þennan dag í Vídalíns- og Garðakirkju, en áður hefur hún vísterað Bessastaðasókn. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Henning Emil Magnússon þjóna fyrir altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og organisti er Jóhann Baldvinsson. Allir velkomnir.


Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar er næsta sunnudag, 1. mars, en hann hefur verið haldinn fyrsta sunnudag marsmánaðar í meira en 60 ár. Á þeim degi er athyglinni einkum beint að börnum og unglingum og þau taka virkan þátt í helgihaldi kirkjunnar. Nú eins og undanfarin ár stendur Æskulýðssamband kirkjunnar í Kjalarnessprófastsdæmi fyrir söfnun til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í Úganda í samstarfi við Hjálparstarf kirkjunnar. 
Nýlegar athugasemdir